Ætla má að strandveiðar standi eitthvað fram í ágúst, því nokkuð er enn eftir í þeim potti aflaheimilda sem veiðar þessar hafa. Í fyrra lauk veiðunum þann 9. júlí enda þá búið að fiska allt sem leyfilegt var. Veiðarnar í ár hófust í byrjun maí og voru þá gefin upp 10.650 tonn í þorski í heildarmagn. Síðar, eða undir lok júní, var magnið aukið um 2.700 tonn.