Lögreglustöð hefur verið opnuð í austurríska bænum Braunau am Inn í húsinu þar sem einræðisherrann Adolf Hitler fæddist í 20. apríl 1889. Deilt hefur verið um það í áratugi hvað eigi að gera við húsið sem var upphaflega gistiheimili byggt á 18. öld. BJÓÐ AÐEINS Í HÚSINU Í NOKKRAR VIKUR Hitler bjó aðeins í húsinu í nokkrar vikur. Fjölskylda hans fluttist í annað hús í bænum stuttu eftir að hann fæddist og flutti endanlega úr bænum þegar hann var þriggja ára. Hitler kom aftur til bæjarins 1938 á leið sinni til Vínar eftir að hafa innlimað Austurríki í Þýskaland nasismans. Húsið hefur síðan þá gengið í gegnum miklar endurbætur.Innanríkisráðuneyti Austurríkis leigði það af eiganda þess í áratugi og borgaði háa leigu til þess að koma í veg fyrir að húsið yrði ferðamannastaður fyrir ferðamenn