Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands ætla að hittast í Manila, höfuðborg Filipsseyja, á morgun til viðræðna um stríðin sem geisa í Mið-Austurlöndum og Úkraínu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, greindi frá viðræðunum í dag. Hann sagði að þær yrðu í öllu falli gagnlegar þar sem hægt væri að spyrja spurninga og leita svara. Fundur hans og Marcos Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verður haldinn í tengslum við ASEAN-ráðstefnuna þar sem utanríkisráðherrar ríkja í Suðaustur-Asíu koma saman til viðræðna.Sergei Lavrov.EPA / SERGEI ILNITSKY