Hámarksverð fyrir staka strætóferð á Englandi verður tvö pund eða um 346 íslenskar krónur frá og með janúar. Þetta tilkynnti Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, í dag sem hluta af aðgerðum sínum til að draga úr framfærslukostnaði.Hámarksverðið á landsvísu er nú þrjú pund en á nokkrum stöðum, til dæmis í London og Manchester þar sem Burnham var borgarstjóri, er verðið lægra.Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, og Rachel Reeves, þáverandi fjármálaráðherra, hækkuðu hámarksverð fyrir staka strætóferð úr tveimur pundum árið 2024. Þá töldu þau tveggja punda hámarkið ekki sjálfbært.Sumir borgarstjórar stórborgarsvæða, þar á meðal Burnham, ákváðu að fjármagna framlengingu á lægra hámarkinu á sínum svæðum.„Góðar og hagkvæmar samgöngur eru nauðsyn. Enginn ætti að vera útilokaður