Fjölgun ungs fólks á leigumarkaði gæti verið merki um stækkandi leigumarkað, segir yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hlutfall fólks á aldrinum 18 til 24 ára lækkaði um 10 prósentustig milli ára, samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS.Á sama tíma hækkaði hlutfall fólks í þessum aldurshópi á leigumarkaði úr 34% í 45%. Um 29% alls fullorðins fólks er á leigumarkaði, samanborið við 28% í fyrra.Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), segir færslu ungs fólks úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár vera í hærra lagi.Í fyrra hafi rannsóknaraðferðum verið breytt þar sem reynt var að ná til fleira fólks. Sömu aðferð var beitt í ár.„Þetta er í annað skipti sem við notum þessa sömu mæliaðferð og hún sýnir einhverja breytingu þannig að þetta e