Útlit er fyrir meiri vind og meiri úrkomu í dag en var í gær. Gengur í sunnan og suðvestan 8 til 15 m/s með rigningu og súld.Úrkomusvæðið berst þó ekki yfir á austanvert landið fyrr en seinnipartinn og því „útlit fyrir enn einn daginn þar sem hiti fer yfir 20 stig á þeim slóðum,“ segir veðurfræðingur.Hiti á landinu 10 til 22 stig og að vana hlýjast austanlands.Á höfuðborgarsvæðinu er sunnan 8 til 13 m/s með morgninum sem snýst í suðvestan 5 til 10 seinnipartinn. Rigning og súld, talsverð úrkoma með köflum, en dregur úr vætunni í kvöld. Hiti 10 til 12 stig.Á morgun má búast við suðvestan og vestan 5 til 13 m/s með dálítilli vætu en þó yfirleitt þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 10 til 20 stig.Suðvestan 5 til 10 á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið og dálítil rigning öðru hvoru en rof