Slökkviflugvél að störfum í Frakklandi, fyrr í mánuðinum.EPA / GAUTHIER BEDRIGNANSSlökkviliðsmenn hafa náð tökum á víðfeðmum skógareldum sem hafa logað í Suður-Frakklandi frá því fyrr í vikunni.Í það minnsta 400 þurftu að yfirgefa heimili sín í Var-sýslu vegna eldsins sem breiddist hraðar út en búist var við. Sýslan er suðaustarlega í landinu og liggur að Miðjarðarhafinu.Yfir 600 slökkviliðsmenn hafa barist við eldana og slökkviflugvélar og -þyrlur voru nýttar við slökkvistörfin.Gróður hefur verið mjög þurr á þessum slóðum eftir mikinn hita og þurrk sem skapar kjöraðstæður fyrir gróður- og skógarelda.