Zohran Mamdani, borgarstjóri í New York, segir að borgaryfirvöld hafi ekki heimild til þess að framfylgja handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag, ICC, á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.„Alríkisstjórnin hefur aftur á móti heimild til þess og ég óska eftir að þau taki höndum saman með ICC og framfylgi þessari handtökuskipun,“ sagði Mamdani í myndbandsávarpi sem hann sendi frá sér í gær.Hann sagði stjórn sína hafa kannað allar mögulegar leiðir til að framfylgja handtökuskipuninni ef Netanjahú kæmi til New York. Ljóst væri að samkvæmt gildandi lögum gætu borgaryfirvöld ekki gert það. FORSETAR BANDARÍKJANNA VIRÐA EKKI HANDTÖKUSKIPUNINA Í nóvember 2024 gaf ICC út handtökuskipunina. Í tilkynningu dómsins sagði að hann hefði gilda ástæðu til að saka Netanjahú u