Saksóknarar dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna og lögmenn Nicolás Maduros, fyrrverandi forsætisráðherra Venesúela, hafa lagt til að réttarhöld yfir Maduro hefjist í júní á næsta ári.Það er í höndunum á Alvin Hellerstein umdæmisdómara að ákveða dagskrá réttarhaldanna. Maduro var steypt af stóli sem forseta Venesúela í janúar og fluttur til Bandaríkjanna. Hann og Cilia Flores, eiginkona hans, voru ákærð í Bandaríkjunum en hafa bæði lýst yfir sakleysi sínu. Maduro var meðal annars ákærður fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning til Bandaríkjanna.Sameiginlega beiðni frá lögfræðingum dómsmálaráðuneytisins og verjendum Maduros má finna í nýjum málsgögnum sem voru lögð fram í aðdraganda málflutnings sem fer fram á Manhattan síðdegis í dag. Í beiðninni eru lögð fram eins konar drög að næstu s