Stjórnstöð Bandaríkjahers greindi frá því í nótt að herinn hefði hafið árásir á Íran, elleftu nóttina í röð. Árásunum lauk um klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma.Í tilkynningu stjórnstöðvarinnar segir að árásunum hafi verið ætlað að veikja getu Írana til þess að ógna skipaumferð um Hormússund. Þær hafi meðal annars beinst að stjórnstöðvum Íranshers, flugskýlum hersins, drónageymslum og flutningakerfi.Stjórnstöð Bandaríkjahers segir Írana hafa ráðist á yfir 30 kaupskip á síðustu þremur mánuðum og ógnað lífi sæfarenda og grafið undan frelsi til siglinga. Frá því í byrjun maí hafi Bandaríkjaher aðstoðað um 900 skip við siglingar um Hormússund. Þannig hafi hernum tekist að koma um 450 milljónum tunna af olíu í gegnum sundið.Íranskir ríkismiðlar segja árásir næturinnar hafa verið gerð