Donald Trump forseti Bandaríkjanna hyggst leggja 100% toll á innflutning samheitalyfja til Bandaríkjanna. Hann greindi frá þessu í færslu á Truth Social í kvöld.Í færslunni sagði Trump engan toll verða lagðan á innflutning lyfja þangað til í ágúst 2028 þegar hann verður 100%. Einu ári síðar yrði tollurinn orðinn 200%.Með þessu vill forsetinn auka framleiðslu lyfja í Bandaríkjunum og hegna fyrirtækjum sem ákveða að koma ekki á fót verksmiðjum í Bandaríkjunum innan áðurgreinds tveggja ára frests.„Markmiðið með þessu er að vernda bandarísku þjóðina,“ ritaði Trump á Truth Social. Þar sagði hann innflutningstolla á frumlyf hafa skilað árangri og að tollunum yrði ekki breytt. „Lyfjaverksmiðjur rísa vítt og breitt um Bandaríkin, á hraða sem aldrei hefur sést áður,“ ritaði Trump.Í apríl skrifaði f