Kári Stefánsson segir netsölu áfengis auka aðgengi að áfengi og því án nokkurs vafa auka neyslu þess en búi einnig til veikleika fyrir þá sem eiga við áfengisvanda að stríða. Kostnaður í heilbrigðiskerfinu sem rekja megi beint til áfengisneyslu nemi hundrað milljörðum ár hvert en áfengi sé eitt versta fíkniefni samfélagsins. Hann segir vel þess virði að fórna svolitlu frelsi þegar kemur að áfengissölu til að vernda fólk sem eigi undir högg að sækja.