Frakkland bannar samfélagsmiðla fyrir börn undir 15 ára

Franska þingið hefur samþykkt frumvarp sem bannar aðgang barna undir 15 ára aldri að samfélagsmiðlum. Verður Frakkland þar með fyrsta landið innan Evrópusambandsins til að setja þessi lög. Vaxandi fjöldi landa grípur nú til aðgerða til að takmarka aðgang að samfélagsmiðlum innan um vaxandi viðvaranir um skaðleg áhrif þeirra á börn.Emmanuel Macron Frakklandsforseti fagnar banninu sem hann hefur barist fyrir og hefur heitið því að framfylgja því fyrir septembermánuð, að því er franski miðillinn La Monde greinir frá.„Frakkland vísar veginn í Evrópu þegar kemur að því að vernda börnin okkar og unglinga,“ sagði Macron í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum, þar sem hann fagnaði „stóru framfaraskrefi“.Þingmenn úr efri og neðri deild franska þingsins náðu samkomulagi um efnisatriði frumvarpsi
Frakkland bannar samfélagsmiðla fyrir börn undir 15 ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd