Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, undirbýr samtal þjóðar leitt af ungu fólki í október þegar 40 ár verða frá leiðtogafundinum í Höfða. Hún segir að þjóðin verði að vakna, líta upp úr samfélagsmiðlum og skoða hvað eigi að koma í staðinn. Það sé ekki nóg að setja reglur og vegrið.Forseti Íslands fagnar umræðu um að takmarka samfélagsmiðlanotkun ungmenna. Hún segir mikilvægt að taka samtalið. „Ég held að við þurfum að vakna, við þurfum að tala saman.“ FAGNAR ÖLLU SEM GEFUR OKKUR FRIÐ FRÁ ATHYGLISSAMFÉLAGINU Samfélagsmiðlanotkun var eitt af því sem fjallað var um á heimsþingi um gervigreind til góðs sem haldið var á dögunum í Genf í Sviss. Forseti Íslands tók þátt í stofnun alþjóðlegrar ráðgjafanefndar á þinginu.Í mörgum löndum hafa verið sett boð og bönn um samfélagsmiðlanotkun ungs fólk