Í færslu á Facebook síðunni segir Sigríður meðal annars: „Á þessu svæði er nú mikið af sauðfé á sumarbeit og þekkjandi til tegundarinnar vissi ég að það gæti endað með ósköpum, sem og varð raunin. Við Mjóanesafleggjarann fann ég kind sem hafði verið bitin illa og lömbin hvergi sjáanleg.”Varað er við myndefni fréttarinnar.Kindinni var komið heim á bæinn sem hún er frá og var hlúð að henni þar. Eftir að Sigríður hafði lesið örmerkið var haft samband við umráðamanninn, sem var með hundinn í pössun, kom í ljós að hann hafði verið týndur í á annan sólarhring frá sumarbústað í landi Miðfells. Sigríður óttast að fleiri kindur eða lömb þeirra séu slösuð eftir hundinn, sem hefur líklega verið líka á ferðinni á Lyngdalsheiði og fleiri stöðum.Þetta segir Sigríður líka á síðunni sinni: „Hundur getur f