Fyrrverandi embættismenn Þýskalands funduðu með rússneskum embættismönnum á laum í Baku, höfuðborg Aserbaísjan, í mánuðinum um leiðir til að binda enda á stríðið í Úkraínu. Ilham Aliyev, forseti Aserbaísjan, segir fundinn hafa farið fram alfarið án vitneskju þarlendra yfirvalda.TVP World greinir frá.Þýsku og rússnesku embættismennirnir funduðu á milli 12. og 14. júlí. Aliyev greindi frá fundarhaldinu á blaðamannafundi með Friedrich Merz Þýskalandskanslara í dag. Merz segist ekki hafa vitað af fundinum. RANNSÓKN ÞÝSKRA MIÐLA VARPAR LJÓSI Á MÁLIÐ Í frétt TVP World segir að sameiginleg rannsókn þýsku miðlanna Die Zeit og ARD hafi komist að því að Ronald Pofalla, sem var áður skrifstofustjóri Angelu Merkel þáverandi Þýskalandskanslara, og Matthias Platzeck, fyrrverandi leiðtogi Sósíalískra