Byrjað var að reisa Heimskautsgerðið á Melrakkaási norðvestan við Raufarhöfn árið 2004. Gerðið er listaverk sem sækir innblástur í norræna goðafræði og stjörnufræði, gert úr steinsteypu. Verkefnið hefur að mestu verið fjármagnað af ríkinu, aðallega með styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Skúlptúrinn Altari elds og vatns var settur upp í fyrra„Við kláruðum fyrsta skúlptúr af fjórum í miðjunni á Heimskautsgerðinu síðastliðið haust. Pólstjörnubendirinn, Hásæti sólar og Geislakór eiga eftir að koma,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, stjórnarformaður Heimskautsgerðisins. ÓVISSA UM FREKARA FJÁRMAGN Óvíst er um frekari fjármögnun eins og sakir standa. Talið er að á annað hundrað milljónir króna vanti til að ljúka verkinu og ekki er ljóst hvenær framkvæmdir hefjast á nýjan leik. Heim