Víkingur mætti ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í Fossvoginum í kvöld í annarri umferð forkeppni meistaradeildarinnar. Víkingur vann 2-1 og fer með gott veganesti inn í næsta leik liðanna.Víkingur byrjaði leikinn af krafti og fékk fjölmörg færi. Ekkert þeirra vildi þó inn fyrri 45 mínúturnar og því var markalaust í hálfleik, 0-0. Svo á 48. mínútu var Nikolaj Hansen vel staðsettur inni í vítateig þegar hann fékk sendingu frá Oliver Ekroth og skilaði boltanum af öryggi í netið, 1-0.Forysta Víkings lifði þó ekki lengi því á 51. mínútu gerðust Víkingar sekir um slæm mistök í vörninni. Ísraelar bitu á agnið og Kings Kangwa jafnaði eftir að hafa stolið boltanum af varnarmönnum Víkings, 1-1.Þaðan skoruðu Ísraelar eitt mark sem þó var dæmt af vegna rangstöðu. Aftur var Nikolaj Hansen svo á ferð