Starfsmönnum Kjarnafæðis Norðlenska var tilkynnt í morgun að Ágúst Torfi Hauksson léti af störfum sem forstjóri fyrirtækisins í lok mánaðarins. Hann hefur verið forstjóri síðan fyrirtækið varð til 2021 við sameiningu Norðlenska og Kjarnafæðis. Þar á undan var hann framkvæmdastjóri Norðlenska frá 2015.Gunnlaugur Eiðsson aðstoðarforstjóri tekur við störfum Ágústar á meðan annað er ekki ákveðið, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.Árið 2024 keypti Kaupfélag Skagfirðinga fyrirtækið og segir í tilkynningu Kjarnafæðis Norðlenska að það hafi verið „upphafið að enn frekari hagræðingu, neytendum og bændum til heilla.“Fréttastofa náði ekki í Ágúst Torfa en í fréttatilkynningunni frá Kjarnafæði Norðlenska er haft eftir honum: „Þessi ár hjá KN og Norðlenska hafa verið lærdómsrík og gefandi. Hjá