Mótmælendur gefa ísraelska liðinu Hapoel Beer-Sheva rautt spjald

Á þriðja tug manna mætti fyrir utan Víkingsheimilið í kvöld til að mótmæla leik Víkings og ísraelska knattspyrnuliðsins Hapoel Beer-Sheva. Mótmælendur mættu með skilti og hrópuðu einkunnarorðin „Palestine will be free“ til að vekja athygli á málstað sínum og leita eftir viðbrögðum frá Knattspyrnusambandi Íslands.Aðgerðin var boðuð af Félaginu Ísland-Palestína sem gagnrýndi KSÍ fyrir aðgerðarleysi og fyrir að leyfa leiknum að fara fram. Í tilkynningu frá skipuleggjendum kom fram að óásættanlegt væri að íslensk lið þyrftu að mæta fyrrverandi liðsmönnum Ísraelshers á knattspyrnuvöllum landsins.Félagið segist vilja byggja upp samstöðu milli Palestínuhreyfingarinnar og fótboltahreyfingarinnar og vinna saman að því að sýna að stuðningur við mannréttindi og íþróttahreyfinguna fari vel saman.
Mótmælendur gefa ísraelska liðinu Hapoel Beer-Sheva rautt spjald

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd