Forstjóri Icelandair segir þriðja ársfjórðung lofa góðu

„Okkur líst heilt yfir vel á árangurinn sem við náðum á öðrum ársfjórðungi. Það eru ytri þættir sem hafa áhrif, fyrst og fremst hækkun á eldsneytisverði sem var mjög mikil á þessu tímabili. En varnir sem við höfum og varnarstefnan okkar milda það eitthvað.“Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Uppgjör annars fjórðungs flugfélagsins var birt í dag. Félagið tapaði fjórum milljörðum króna á tímabilinu þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um 7% frá síðasta ári. Hækkandi kostnaður skýrir tapið.„Eldsneytiskostnaðurinn hækkar verulega milli ára. Fyrir utan það gekk reksturinn vel í fjórðungnum, tekjumyndun mjög sterk og undirliggjandi rekstur er betri á milli ára ef við tökum eldsneytiskostnað út fyrir sviga.“Bogi Nils segir ársfjórðungsuppgjörið í takt við afkomuspá sem gefin var út
Forstjóri Icelandair segir þriðja ársfjórðung lofa góðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd