Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélagsins, segir dýralækna ekki fá mannsæmandi laun fyrir að ganga bakvaktir.Matvælastofnun sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem vakin var athygli á því að ekki hefði tekist að tryggja fulla mönnun bakvakta dýralækna á Suður- og Vesturlandi í sumar.Enginn er á bakvakt á Akranesi, í Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi í dag og um helgina. Einnig eru ómannaðar bakvaktir í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra frá deginum í dag til 10. ágúst.Bára segir vandamálið hafa verið viðvarandi í mörg ár. Fólk fáist ekki til að ganga vaktirnar, aðallega vegna slæmra launakjara.„Svo snýst þetta líka um stór vaktsvæði, fáa dýralækna með margar vaktir og starfsskilyrði á svæðunum þar sem þau eru mjög stór og þú þarft að fara yfir mjög langan v