Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í nýrri könnun Maskínu

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25% fylgi og jafnframt stærsti stjórnmálaflokkur landsins í nýrri könnun Maskínu. Könnunin var framkvæmd í þessum mánuði.Vísir greinir frá.Þetta er í fyrsta sinn frá Alþingiskosningum sem Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í könnun Maskínu. Næststærstur er Samfylkingin sem mælist með 24,4% fylgi. Munurinn á flokkunum er því aðeins 0,6% og innan vikmarka könnunarinnar, sem eru 2,7 prósentustig hjá báðum flokkum.Ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins, mælast ekki með meirihluta fylgis, 43%. Það er að vísu 1,3% meira en í júní. FYLGI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS HELDUR ÁFRAM AÐ AUKAST Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt töluverðu fylgi við sig á árinu. Flokkurinn mældist með 13,5% fylgi í janúar og hefur því bætt við sig 11,5% síðan. Í
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í nýrri könnun Maskínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd