Innflutningur á ódýrum vinnuvélum sem standast ekki kröfur Vinnueftirlitsins má aldrei vera á kostnað öryggis, segir atvinnuvegaráðherra. Vinnueftirlitið sé að sinna hlutverki sínu þegar það bannar innflutning á slíkum vélum. VINNUEFTIRLITIÐ SINNIR HLUTVERKI SÍNU Vinnueftirlitið hefur upp á síðkastið stöðvað innflutning á vinnuvélum og tækjum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins því þau hafa ekki staðist öryggiskröfur.Kaupendur hafa því margir setið eftir með sárt ennið og ein kæra hefur þegar borist félags- og húsnæðismálaráðuneyti vegna ákvarðana Vinnueftirlitsins. Hópur manna segist hafa orðið fyrir fjárhagstjóni vegna afskiptanna.„Ég sé ekki betur en að þarna sé bara Vinnueftirlitið að sinna sínu hlutverki, það er að segja að tryggja að vinnuvélar sem fluttar eru til landsins