Samgöngustofa ætlar að kæra til lögreglu tvo flugmenn sem sviptir voru flugréttindum tímabundið vegna lágflugs yfir Vestmannaeyjum. Þetta staðfestir Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu.Þórhildur segir að Samgöngustofa hafi þegar tekið ákvörðun um að kæra málið til lögreglu og að það verði gert á næstu vikum.Lágflugið var síðasta flug flugstjóra vélarinnar áður en hann lét af störfum. Samgöngustofa svipti hann flugréttindum í tvö ár. Hinn flugmaðurinn var sviptur réttindum í tólf mánuði. Hann hefur ekki fengið að fljúga á meðan atvikið er rannsakað.Flugmennirnir hafa kost á því að skjóta ákvörðun Samgöngustofu um leyfissviptingu til innviðaráðuneytisins en ekki liggur fyrir hvort það standi til.Ákvörðun Samgöngustofu gagnvart flugrekanda, Icelandair, hefur ekki en