12 hið minnsta létust í þremur loftárásum Ísraelshers á Gaza í nótt og dag, þar af sex manna fjölskylda, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Hjón og fjögur börn þeirra létust í árásinni í al-Sabra hverfinu í vesturhluta Gazaborgar.Ísraelsher segir að meðlimur Hamas-samtakanna hafi verið skotmarkið og að verið sé að rannsaka árásina.Í dag létust fjórir í loftárás á heimili í al-Samar í Gazaborg og tveir til viðbótar létust í drónaárás hersins á bifreið í al-Zahra suður af Gazaborg. Ísraelsher hefur ekki tjáð sig um þær árásir.Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas á Gaza hafa 1.168 Palestínumenn hið minnsta verið drepnir í loftárásum Ísraelshers síðan vopnahlé milli Ísrael og Hamas tók gildi í október. Fjórir ísraelskir hermenn hafi fallið í árásum á Gaza á sama tíma. NÆR 60 DEPNIR Á EIN