Samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára líklega samþykkt

Þingmenn á franska þinginu greiða atkvæði um frumvarp um samfélagsmiðlabann fyrir börn undir fimmtán ára aldri í kvöld. Búist er við að það verði samþykkt. Anne Le Henanff, ráðherra stafrænna mála, sagði á samfélagsmiðlinum X í gær að Frakkland yrði þar með fyrsta Evrópuríkið til að innleiða stafrænt aldurstakmark til að vernda börn á Internetinu. Búist er við að bannið verði gert í tveimur hlutum, frá 1. september verði ungmennum undir fimmtán ára aldri bannað að búa til reikninga á samfélagsmiðlum og frá janúar á næsta ári nái bannið yfir alla aðganga, líka þá sem þegar eru til.Búist er við að þingmenn á franska þinginu samþykki bannið í kvöld.EPA
Samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára líklega samþykkt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd