Flugfélagið Icelandair tapaði fjórum milljörðum króna eftir skatta á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir tekjur hafi aukist um 7% milli ára.Tekjur flugfélagsins á ársfjórðungnum námu 61, 4 milljörðum króna, sem er aukning upp á 7%. Rekstrarhagnaður, EBIT, var neikvæður um 3,7 milljarða króna. Til samanburðar var rekstrarhagnaður á sama tímabili í fyrra 102,9 milljónir króna.Í tilkynningu frá félaginu segir að tapið sé einkum vegna hækkandi eldsneytiskostnaðar. Verð á eldsneyti hefur farið hækkandi á árinu vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Einingakostnaður, heildarkostnaður með tilliti til magns af vöru eða þjónustu, hækkaði um 15% með tilliti til eldsneytiskostnaðar. Einingakostnaður án eldsneytis hækkaði um 7% á milli ára.Lausafjárstaða Icelandair er 76,3 milljarðar í lok ársfjórðungsins sem er