Tveir flugmenn voru sviptir flugréttindum tímabundið, annar í eitt ár og hinn í tvö, eftir að hafa flogið flugvél Icelandair í lágfugi yfir Vestmannaeyjar þann 11. apríl. Þetta staðfestir Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu.Búið er að senda út ákvörðunin til þeirra flugmanna er málið varðar. ÁKVÖRÐUNIN KÆRANLEG Flugstjóri vélarinnar, sem var að fljúga sitt hinsta flug með Icelandair er atvikið átti sér stað, var sviptur réttindum í 24 mánuði.Flugmaður sem flaug með flugstjóranum var sviptur réttindum í 12 mánuði. Flugmaðurinn var í leyfi frá störfum á meðan á rannsókn málsins stóð. Flugmennirnir hafa kost á því að skjóta ákvörðun Samgöngustofu til innviðaráðuneytisins. Ekki liggur fyrir hvort það hafi verið gert. Ákvörðun Samgöngustofu gagnvart flugrekanda hef