Nærri 30 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi

Land rís við Svartsengi og kvikusöfnun er áfram stöðug. Um 30 rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.Í fyrri gosum á Sundhnúksgígaröðinni höfðu mest safnast 23 rúmmetrar kviku þegar eldgos hófst. Með áframhaldandi kvikusöfnun er líklegasta sviðsmyndin enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi og yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.Jarðskjálftavirkni á svæðinu er heldur lítil og helst hættumat óbreytt.Þann 16. júlí var eitt ár liðið frá seinasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni. Eldsumbrotin á Reykjanesskaga hófust árið 2021. Gosin eru orðin tólf, þar af níu þeirra á Sundhnúksgígaröðinni.Eldgosið sem hófst fyrir ári síðan stóð yfir í þrjár vikur. Kvikuhlaup hófst rétt fyrir
Nærri 30 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd