Hollensk stjórnvöld tilkynntu í dag að innflutningur yrði bannaður frá palestínsku yfirráðasvæði sem ísraelskir landtökumenn hafa hernumið. Bannið tekur gildi tuttugasta og annan september. Áður höfðu önnur Evrópusambandsríki eins og Írland, Belgía og Spánn sett takmarkanir á viðskipti við hertekin svæði Ísraela. Sífellt háværari kröfur hafa komið fram um að Evrópusambandið grípi til samræmdra aðgerða gagnvart Ísrael og bregðist þannig við hernaðaraðgerðum ríkisins á Gaza og auknu ofbeldi á hernumdum svæðum. Einhver aðildarríki hafa þó verið treg til að styðja slíkar aðgerðir.