Mannfall almennra borgara jókst um tæplega 40%

Sameinuðu þjóðirnar segja að 37% aukning hafi orðið í fjölda almennra borgara sem hafi látið lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu á fyrri hluta ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Rússar og Úkraínumenn hafa aukið loftárásir á báða bóga undanfarna mánuði og lítið sem bendir til þess að stríðinu sé að ljúka.Danielle Bell, yfirmaður mannréttindaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, sagði við fjölmiðla í Genf í Sviss í dag að 1.396 almennir borgarar hefðu verið drepnir og 7.978 særst í stríðinu það sem af er ári.Það sé 37% aukning frá sama tíma í fyrra og nærri tvöfalt meira en stofnunin skráði 2024.Bell segir að skýringin sé að hluta til vegna aukinnar notkunar stríðandi fylkinga á langdrægum eldflaugum og drónum. Þeim sé hægt að beita á þéttbýl svæði sem eru langt frá víglínunni.Hún
Mannfall almennra borgara jókst um tæplega 40%

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd