Íslensk hjón flúðu af íbúðarhóteli á Tenerife vegna ástands íbúðarinnar og iðandi kakkalakka sem voru í hverjum krók og kima. Komu þeir úr gati bak við ísskápinn og var íbúðin morandi. Hjónin fá ekki endurgreitt nema lítinn hluta og fá ekki stuðning frá bókunarsíðunni.