Einn grunaður vegna eldsins í Drammen

Ein manneskja er með stöðu grunaðs vegna eldsins í Drammen sem kviknaði á föstudag. Það þýðir þó ekki að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað, að sögn Ninu Fladhus, lögreglustjóra í Suðaustur-Noregi.Í frétt Norska ríkisútvarpsins, NRK, segir að lögregla vinni að því að safna upplýsingum. Manneskjan hafi fengið stöðu grunaðs til að verja rannsóknarhagsmuni.„Við leggjum áherslu á að þótt manneskja sé með stöðu grunaðs þýði það ekki að lögreglan hafi upplýsingar um hvað varð til þess að eldurinn kviknaði eða að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað,“ segir Fladhus.Lögregla hafi grun um hvar eldurinn hafi kviknað en ekki neinn grunn til að segja til um upptök hans. Það eigi eftir að taka einhvern tíma að komast að því. Enn eigi eftir að rannsaka vettvang betur.Lögregla nýtur aðstoðar Rannsóknarlögr
Einn grunaður vegna eldsins í Drammen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd