Tveir flugmenn voru sviptir flugleyfi tímabundið, annar í eitt ár og hinn í tvö, eftir að hafa flogið flugvél Icelandair í lágfugi yfir Vestmannaeyjar þann 11. apríl. Þetta staðfestir Þórhildur Elín Elínardóttir, almannatengill hjá Samgöngustofu.Búið er að senda út ákvörðunin til þeirra flugmanna er málið varðar. ÁKVÖRÐUNIN KÆRANLEG Flugstjóri vélarinnar, sem var að fljúga sitt hinsta flug með Icelandair er atvikið átti sér stað var sviptur leyfi í 24 mánuði.Flugmaður sem flaug með flugstjóranum var sviptur leyfi í 12 mánuði, flugmaðurinn hefur ekki fengið að fljúgja á meðan rannsókn málsins stendur.Flugmennirnir hafa kost á því að kæra hana. Ekki liggur fyrir hvort það hafi verið gert. Rannsókn Samgöngustofu og lögreglu er þó ekki enn lokið, ekki hefur enn verið tekið ákvörðun gagnvart