Heyja í fyrsta sinn síðan í aurskriðunum

Bærinn Björg í Köldukinn í Þingeyjarsveit lenti hvað verst í aurskriðum sem féllu í október 2021. Nánast öll hlíðin fyrir ofan bæinn hljóp fram og olli miklu tjóni á túnum. Minnstu munaði að skriðurnar lentu á fjósinu.Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi á Björgum, tilkynnti á samfélagsmiðlum fyrir helgi að hún væri að heyja ysta túnið í fyrsta sinn síðan skriðurnar féllu.„Þetta er lokahnykkurinn núna að ná að slá aftur Brekkuskákina, sem er túnið sem er næst fjallinu. Uppskeran var reyndar ekkert rosa mikil en þetta var svo mikill áfangasigur að ná síðasta túninu sem við höfum ekki náð að slá eða hirða síðan 2021,“ segir Jóna Björg. ÞOLINMÆÐI OG SMÁ ÞRJÓSKA SKILAÐI ÁRANGRI Heyskapur hefur gengið vel í Köldukinn eftir vætusamt vor en góðviðrisdagar hafa verið margir upp á síðkastið og spret
Heyja í fyrsta sinn síðan í aurskriðunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd