Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að settir verði 50% tollar á fjölda kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu. Að mati forsetans hafa kanadísk stjórnvöld mismunað bandarískum vörum eins og bílum, áfengi og mjólkurvörum á óréttlátan hátt.Gert er ráð fyrir að tollarnir taki gildi eftir 30 daga. Meðal þess sem bandarísk stjórnvöld ætla að setja tolla á eru vín, hokkíkylfur og sement. Tollar verða einnig settir á vörur sem nutu verndar undir fríverslunarsamningi Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó.Nýju tollarnir taka ekki til orkuframleiðslu, fisks, mikilvægra steinefna og kalíums. Vörur sem eru þegar tollskyldar og miða að því að stuðla að þjóðaröryggi, svo sem stál og ál, eru einnig undanskildar.Nú þegar eru Bandaríkin með