Fáar íbúðir hafa selst með sameignarfyrirkomulagi en sameignarsjóðir eiga hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Fermetraverð íbúða sem selst hafa með fyrirkomulaginu er sambærilegt öðrum íbúðum.Þetta kemur fram á vef HMS.„Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því að svokallað sameignarfyrirkomulag var fyrst kynnt til sögunnar hér á landi. Þar bjóðast fjárfestingasjóðir á vegum byggingarfyrirtækja til að taka þátt í kaupum einstaklinga á nýjum íbúðum úr eigin smiðju byggingaraðilanna,“ segir á vef HMS. FIMM FJÁRFESTINGASJÓÐIR EIGA 44 ÍBÚÐIR Í upphafi mánaðarins áttu fimm fjárfestingarsjóðir á vegum byggingaverktaka hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Flestar þeirra eru í Garðabæ, 43 prósent, og í Hafnarfirði, 41 prósent. 16 prósent íbúðanna eru í Reykjavík.Meirihluti íbúða sem fjárfestingars