Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, sagði af sér þingmennsku í apríl. Hún var fyrst kosin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2013. Á næstu dögum tekur hún við stöðu sendiherra Íslands í London. Þórdís var gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér á Rás 1. Þar fer hún meðal annars yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. „Það var alls konar sko, ég var auðvitað alveg búin að hugsa það mjög vandlega hvort ég myndi gera þetta,” segir Þórdís Kolbrún þegar hún er spurð hvernig tilfinning það var að hætta á þingi. Hún segir það ekki hafa verið auðvelda ákvörðun. „Það var mjög ljúfsárt, mér leið vel með þetta tímabil og þennan tíma en auðvitað er þetta mjög stór ákvörðun. Ég vildi ekki festast í: hver er