Bandarískir ferðamenn stungnir í Aþenu

Tveir bandarískir ferðamenn særðust í hnífaárás í Aþenu á Grikklandi í morgun. Árásarmaðurinn réðst á fólkið nálægt inngangi að Akrópólissafni við rætur Akrópólishæðar.Lögregla handtók árásarmanninn og ferðamennirnir voru fluttir á sjúkrahús, maðurinn með alvarlega áverka á handlegg og konan með minniháttar áverka á fótlegg.Árásarmaðurinn virtist glíma við geðræn vandamál að því er haft eftir lögreglu í frétt AP.Árásir á götum úti eru sjaldgæfar á Grikklandi.Akrópólishæð er gríðarvinsæll ferðamannastaður og eitt frægasta kennileiti Aþenu. 4,6 milljónir ferðamanna heimsóttu hæðina í fyrra.
Bandarískir ferðamenn stungnir í Aþenu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd