Íbúar mótmæla byggingu gagnavers Google

Íbúar í bænum Kronstorf í norður Austurríki hafa mótmælt fyrirhuguðu gagnaveri Google á svæðinu.The Times segir að Google ráðgeri að byggja eitt stærsta gagnaver Evrópu á yfir 50 hektara svæði nærri Kronstorf, eða svæði á stærð við 70 fótboltavelli.Mótmælendur segja að gagnaverið gæti haft áhrif á vatns- og orkubirgðir á svæðinu, sem og dýralíf í nærliggjandi á. Ráðgert er að gagnaverið opni á næsta ári og hýsi netþjóna gervigreindar og skýþjónustu Google, landakort og streymi á YouTube.Stjórnmálamenn í héraðinu segja að gagnaverið styrki efnahaginn og sýni fram á framþróun á svæðinu.Yfir 300 mótmælendur komu saman á föstudag á svæðinu þar sem gagnaverið á að rísa til að mótmæla framkvæmdunum. Mótmælendur kalla eftir því að úttekt verið gerð á umhverfisáhrifum gagnaversins og hafa safnað u
Íbúar mótmæla byggingu gagnavers Google

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd