Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Rannsókninni var hætt í kjölfar þess að endanleg krufningsskýrsla barst lögreglu í síðustu viku.Eyjafréttir greina frá þessu.Þegar lögregla hafði farið yfir skýrsluna var niðurstaðan sú að ekki væri grundvöllur til að halda rannsókn áfram.Starfsmaður hjúkrunarheimilisins tilkynnti andlát konunnar til lögreglu í janúar. Tvær konur sem störfuðu á hjúkrunarheimilinu höfðu réttarstöðu sakbornings. Þær hafa verið upplýstar um ákvörðun lögreglu. Réttargæslumaður fjölskyldu hinnar látnu hefur sömuleiðis verið upplýstur og komið upplýsingum til aðstandenda konunnar.Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er ekki liðinn.