Yfirvöld lýsa yfir neyðarástandi vegna úrhellisrigninga

EPA / HERNAN CONTRERASYfirvöld í Chile hafa lýst yfir neyðarástandi vegna úrhellisrigninga í norður Chile. Að minnsta kosti 10 eru látnir og yfir ellefu hundruð heimili eru gjöreyðilögð eða mikið skemmd samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í landinu. Þá eru sautján slasaðir og fjögurra er saknað.Rigningarnar eru einkum í norðurhéruðunum Coquimbo og Atacama þar sem mánaðarúrkoma féll á einni klukkustund. Vatnsyfirborð áa hefur hækkað, vegir hafa lokast og samfélög einangrast. Leðja og rafmagnsleysi hafa haft áhrif á drykkjarvatn í Coquimbo. Veðurstofa landsins segir að þetta sé mesta úrkoma sem fallið hefur í landinu í yfir tvo áratugi.
Yfirvöld lýsa yfir neyðarástandi vegna úrhellisrigninga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd