Risasamruni Paramount og Warner Bros. settur á ís

Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur sett samruna Paramount Pictures og Warner Bros. Discovery á ís tímabundið. Fylking tólf ríkja í Bandaríkjunum, sem leidd er af Kaliforníu, hefur lagst gegn samrunanum. Ríkin segja hann brjóta gegn samkeppnislögum og til þess gerðan að leiða til hærra verðs og færri kvikmynda og sjónvarpsþátta.Variety greinir frá. FYRIRTÆKIN ÁFRAM AÐSKILIN Á MEÐAN SKORIÐ ER ÚR UM MÁLIÐ Araceli Martinez-Olguin alríkisdómari féllst á að setja 14 daga lögbann á samrunann eftir að hafa hlýtt á rök beggja aðila á föstudag. Paramount hafði áður samþykkt að ljúka ekki viðskiptunum fyrir 22. júlí.„Málflutningur ríkjanna sem sækja málið sýnir að minnsta kosti fram á að alvarlegum spurningum um málið er enn ósvarað. Það styður þá ákvörðun að úrskurða lögbann til bráðabirgða,“ sk
Risasamruni Paramount og Warner Bros. settur á ís

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd