Að minnsta kosti 27 látnir eftir ferjuslys í Gvæjana

Að minnsta kosti 27 eru látnir og 83 er enn saknað eftir að ferju hvolfdi undan strönd Gvæjana um helgina, að sögn Mark Phillips, forsætisráðherra landsins.AFP-fréttastofan greinir frá.Leit að eftirlifendum stendur enn yfir eftir að MV Barima hvolfdi seint á laugardagskvöld, en Phillips greindi frá því á blaðamannafundi að 69 manns hefði verið bjargað til þessa.Tæpum átta klukkustundum eftir að ferjan lagði af stað frá Georgetown til Port Kaituma síðdegis á laugardag sendi hún frá sér neyðarkall. Talið er að risaalda hafi skollið á skipinu og hvolft því, samkvæmt færslu ráðherra opinberra framkvæmda á samfélagsmiðlum.Fáni Gvæjana í höfuðborginni Georgetown. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.EPA / NAZIMA RAGHUBIR
Að minnsta kosti 27 látnir eftir ferjuslys í Gvæjana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd