Netvís hefur opnað nýja tilkynningagátt þar sem almenningur getur látið vita ef hann verður var við upplýsingar á netinu sem gætu flokkast sem óeðlileg afskipti af komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer í lok ágúst. Stefanía Ragnarsdóttir hjá Netvís segir að þótt engar fréttnæmar tilkynningar hafi enn borist sé viðbúnaður mikill.„Við vitum að eftir því sem það færist hiti í leikana þá búumst við við slíkum tilkynningum. Við verðum á vaktinni,“ segir Stefanía. Í SAMSTARFI VIÐ LÖGREGLU OG SAMFÉLAGSMIÐLAFYRIRTÆKI Netvís er í nánu samstarfi við innlenda aðila, svo sem lögregluna, til að koma alvarlegum málum í réttan farveg. Þá er stofnunin einnig í góðu sambandi við erlendu fyrirtækin sem stýra samfélagsmiðlunum til þess að geta látið fjarlægja efni ef upplýsingaóreiða fer í dreifingu.