Aldrei áður hafa tónleikar á Sólheimum í Grímsnesi verið jafnvel sóttir og í sumar enda Sólheimakirkja yfirfull á tónleikunum og margir hafa þurft að hverfa frá eða hlusta fyrir utan kirkjuna vegna plássleysis.Tónleikarnir, sem fara alltaf fram á laugardögum klukkan 14:00 í Sólheimakirkju, eru hluti af Menningarveislu Sólheima. Kirkjan fylltist strax hjá síðasta gesti og þurftu margir frá að hverfa eða standa úti og hlusta en það var Helgi Björnsson með þeim Jónasi Þór orgelleikara og Matthíasi, sem spilaði á gítar og fiðlu.Helgi fékk gesti til að syngja með sér og stemningin á tónleikunum var eins og best getur orðið.„Heyrðu, hann Helgi er svakalega skemmtilegur, já, já, hann og amen með það, það er amen, já alveg stuð og uppi er Guð,” segir Reynir Pétur Ingvarsson, íbúi á Sólheimum.Helgi