Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu hefst eftir viku, þann 27. júlí. Undirbúningur og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar er í höndum Landskjörstjórnar.„Þá verður hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna og hjá sendiráðum og ræðismönnum erlendis. Ætli það sé ekki um 50 staðir hér á landi og 130 erlendis,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar.Þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst en utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hugsuð fyrir þá kjósendur sem geta ekki kosið á kjördag.Allir kjósendur á kjörskrá, það eru íslenskir ríkisborgarar sem eru eldri en 18 ára, mega kjósa utan kjörfundar. Þá verða einnig kosningar inni á ákveðnum stofnunum eins og sjúkrahúsum, fangelsum og dvalarheimilum aldraðra.