20 þúsund færri Bandaríkjamenn fóru um Keflavíkurflugvöll

Tuttugu þúsund færri Bandaríkjamenn komu til Íslands í júní en í sama mánuði í fyrra samkvæmt gögnum Ferðamálastofu. Það er um 21% samdráttur milli ára.„Það er erfitt að fullyrða að það sé að verða stór samdráttur í ferðum Bandaríkjamanna almennt út frá tölum eins mánaðar en það gefur þó vísbendingu um að það sé að slakna heldur á áhuga Bandaríkjamanna á Íslandi sem áfangastað,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.Hann segir að ýmsar ástæður geti verið fyrir færri komum í júní frá því í fyrra. Til dæmis geti verið að fleiri hafi ákveðið að ferðast til Íslands í ágúst vegna sólmyrkvans. Þá gætu heimsmeistaramótið í fótbolta og efnahagsástandið í Bandaríkjunum spilað inn í.Almennt hefur dregið úr ferðalögum Bandaríkjamanna. Samkvæmt nýlegri könnun Deloitte
20 þúsund færri Bandaríkjamenn fóru um Keflavíkurflugvöll

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd