Judit Polgar afþakkar forsetastólinn í Ungverjalandi

Judit Polgar, stórmeistari í skák, hefur afþakkað boð forsætisráðherra Ungverjalands um að verða næsti forseti landsins.Peter Magyar, forsætisráðherra Ungverjalands, skrifaði í færslu á samfélagsmiðlum að Polgar gæti orðið forseti sem sameinaði alla Ungverja og leiðtogi sem þeir gætu verið stoltir af. Magyar kvaðst ætla að ræða við Polgar á morgun um hlutverkið.Polgar var á toppi styrkleikalista kvenna í skák í 26 ár, allt þar til hún hætti að keppa 2014. Hún tefldi um skeið undir merkjum Taflfélags Reykjavíkur.Í færslu á samfélagsmiðlum segist Judit Polgar ekki búa yfir þeim styrk sem þurfi til að taka á sig þá sögulegu ábyrgð að sameina sundraða þjóð. Þar af leiðandi geti hún ekki þegið boð Magyars um forsetastólinn. VELJA NÝJAN FORSETA INNAN 30 DAGA Fráfarandi forseti Ungverjalands e
Judit Polgar afþakkar forsetastólinn í Ungverjalandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd